Enski boltinn

Jóhann Berg og félagar unnu | Kári ekki með vegna meiðsla

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhann var í byrjunarliði Charlton gegn Reading í dag.
Jóhann var í byrjunarliði Charlton gegn Reading í dag. Vísir/Getty
Öll þrjú Íslendingaliðin í ensku B-deildinni í fótbolta voru í eldlínunni í dag.

Jóhann Berg Guðmundsson lék í 88. mínútur þegar Charlton vann 0-1 útisigur á Reading. Charlton situr í 8. sæti deildarinnar með 27 stig eftir 17 umferðir.

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn inni á miðjunni í markalausu jafntefli Cardiff og Birmingham. Cardiff situr í 12. sæti með 23 stig.

Kári Árnason var ekki í leikmannahópi Rotherham þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Sheffield Wednesday vegna támeiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×