Erlent

Tölvuárás á JP Morgan

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Stórbankinn JP Morgan hefur lýst því yfir að stórfelld tölvuárás hafi verið gerð á bankann á dögunum.
Stórbankinn JP Morgan hefur lýst því yfir að stórfelld tölvuárás hafi verið gerð á bankann á dögunum.
Stórbankinn JP Morgan hefur lýst því yfir að stórfelld tölvuárás hafi verið gerð á bankann á dögunum þar sem tölvuþrjótum tókst að komast yfir upplýsingar um eigendur 76 milljón einkareikninga og sjö milljón fyrirtækjareikninga í Bandaríkjunum. Bankinn fullyrðir hinsvegar að upplýsingarnar hafi ekki nægt þrjótunum til þess að komast inn á viðkomandi reikninga og að ekki hafi orðið vart við tilraunir til þess að nýta upplýsingarnar. JP Morgan er stærsti banki Bandaríkjanna og fyrr á árinu var greint frá annarri slíkri árás sem sögð var koma frá Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×