Enski boltinn

Tottenham valtaði yfir QPR

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Chadli skallar og Green kemur engum vörnum við
Chadli skallar og Green kemur engum vörnum við Vísir/Getty
Tottenham Hotspur fór illa með QPR í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag á heimavelli sínum í Lundúnum. Tottenham vann leikinn 4-0 og var 3-0 yfir í hálfleik.

Mikill gæðamunur var á liðunum í dag og hefði Tottenham hæglega getað unnið enn stærri sigur.

Nacer Chadli skoraði fyrsta og þriðja mark Tottenham en varnarmaðurinn ungi Eric Dier skoraði annað markið.

Emmanuel Adebayor skoraði fjórða markið um miðbik seinni hálfleiks eftir góða sendingu Danny Rose.

Tottenham er því með fullt hús stiga eftir tvær umferðir en QPR er án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×