Mourinho: Er með tvo af þremum bestu markvörðum heims Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 23. ágúst 2014 13:15 Mourinho hræðist ekki stórar ákvarðanir vísir/getty
Jose Mourinho knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea segir að liðið muni ekki standa í vegi fyrir markverðinum Petr Cech vilji Tékkinn stóri fara frá félaginu. Mourinho gerði Belgann Thibaut Courtois að aðal markverði Chelsea nú í upphafi leiktíðar og er Cech að vonum ekki sáttur við stöðuna enda einn besti markvörður heims. „Það er ákveðin röð innan félagsins. Efstur er eigandinn, svo er það stjórnin og þar á eftir kem ég. Petr á skilið að sitja niður með honum og hlusta á hann,“ sagði Mourinho. „Hann á allt gott skilið frá þessu félagi en þetta augnablik er ekki enn komið,“ sagði portúgalski stjórinn um það hvort Cech sé á leið frá félaginu. Mourinho hefur ekki útskýrt fyrir Cech af hverju hann missti sæti sitt í liðnu. „Ef ég tala við hann þarf ég að tala við einhvern annan á morgun og svo annan og annan. Þetta hef ég aldrei gert. Ég þarf ekki að tala við leikmenn útaf ákvörðunum mínum. „Fyrir mér er röðin svona; félagið, liðið og svo leikmennirnir. Félagið er ekki undir minni stjórn, liðið er það. Ég vil að leikmenn sjái að allt sem ég geri er að hugsa um liðið. Ég vil ekki þurfa að réttlæta allt sem ég geri fyrir leikmönnunum. Þeir vita hvar skrifstofa mín er. Ef þeir þurfa útskýringu þá er alltaf opið inn til mín. Petr kom aldrei til mín,“ sagði Mourinho sem útilokar ekki að Petr Cech muni leika eitthvað hlutverk í liðinu veri hann áfram hjá félaginu. „Petr þarf að leika. Ég sé ekkert á móti því að Petr leiki, sama hver leikurinn er, það skiptir ekki máli á móti hverjum við leikum. „Ég hef fulla trú á honum. Ef ég ákveð að það þurfi að breyta þegar leikirnir hlaðast upp þá er þetta líklega auðveldasta staðan til að gera það. Við erum með tvo af þremur bestu markvörðum heims,“ sagði Mourinho Cech hefur meðal annars verið orðaður við franska stórliðið PSG. Cech gekk til liðs við Chelsea sumarið 2004 frá franska liðinu Rennes og hefur leikið tæplega 450 leiki fyrir félagið.
Enski boltinn Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira