Enski boltinn

Óheppni hrúturinn frá Íslandi heldur á Wembley

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Englandsfararnir Rós Guðmundsdóttir og Þorvaldur Ingimundarson.
Englandsfararnir Rós Guðmundsdóttir og Þorvaldur Ingimundarson.
Hann hefur haldið með Derby County frá blautu barnsbeini og nú er komið að stóru stundinni. Þorvaldur Ingimundarson, stuðningsmaður hrútanna frá Derby og starfsmaður Knattspyrnusambands Íslands, vonast til að sjá lið sitt vinna sigur eftir átta árangurslausar tilraunir.

Derby mætir QPR í úrslitaleik um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Wembley í London á morgun. Átta sinnum áður hefur Þorvaldur séð sitt uppáhaldslið spila en aldrei hefur sigur unnist. Með í för er unnustan, Rós Guðmundsdóttir, sem vonandi veitir Þorvaldi þá lukku sem hrútarnir virðast þurfa á að halda þegar hann er í áhorfendastúkunni.

„Það er engin skýring á því af hverju ég held með hrútunum. Það er enginn í nærumhverfi mínu sem heldur með Derby,“ segir Þorvaldur í viðtali við Derby Telegraph sem komust á snoðir um íslenska stuðningsmann hrútanna og árangurslausar ferðir hans til „Mekka“. Reyndar sá Þorvaldur liðið sitt spila æfingaleik við ÍA á Skipaskaga um árið en meira að segja þá beið Derby lægri hlut.

Vonandi sér Þorvaldur Derby fagna á morgun.Vísir/Getty
Derby er gamalt stórveldi og segist Þorvaldur líklega bara hafa ákveðið að halda með besta liðinu. Hann sé fæddur 1970 og lærði að lesa fjögurra ára gamall.

„Derby varð Englandsmeistari tímabilið 1974-1975 þannig að líklega er það ástæðan. Síðan hef ég verið stuðningsmaður númer eitt,“ segir Þorvaldur.

Knattspyrnuunnandinn eldhressi vill greinilega ekki styggja vongóða stuðningsmenn Derby fyrir stórleikinn á morgun. Leikið verður til þrautar á morgun og getur Derby tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni í fyrsta skipti í

„Í ljósi sögunnar bið ég aðra stuðningsmenn hrútanna afsökunar fyrir fram,“ segir Þorvaldur og bætir við að eina von stuðningsmanna Derby sé sú að unnustan, sem komi nú með í fyrsta skipti, veiti þeim þá lukku sem til þurfi gegn QPR á morgun.

„Að því sögðu, þá hélt hún reyndar með QPR þegar hún var yngri.“

Hér að neðan má sjá fagnaðarlætin sem brutust út meðal leikmanna og stuðningsmanna þegar sæti í úrslitaleiknum á Wembley var í höfn.

Leikurinn á Wembley á morgun hefst klukkan 14 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×