Óheppni hrúturinn frá Íslandi heldur á Wembley Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. maí 2014 15:31 Englandsfararnir Rós Guðmundsdóttir og Þorvaldur Ingimundarson.
Hann hefur haldið með Derby County frá blautu barnsbeini og nú er komið að stóru stundinni. Þorvaldur Ingimundarson, stuðningsmaður hrútanna frá Derby og starfsmaður Knattspyrnusambands Íslands, vonast til að sjá lið sitt vinna sigur eftir átta árangurslausar tilraunir. Derby mætir QPR í úrslitaleik um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Wembley í London á morgun. Átta sinnum áður hefur Þorvaldur séð sitt uppáhaldslið spila en aldrei hefur sigur unnist. Með í för er unnustan, Rós Guðmundsdóttir, sem vonandi veitir Þorvaldi þá lukku sem hrútarnir virðast þurfa á að halda þegar hann er í áhorfendastúkunni. „Það er engin skýring á því af hverju ég held með hrútunum. Það er enginn í nærumhverfi mínu sem heldur með Derby,“ segir Þorvaldur í viðtali við Derby Telegraph sem komust á snoðir um íslenska stuðningsmann hrútanna og árangurslausar ferðir hans til „Mekka“. Reyndar sá Þorvaldur liðið sitt spila æfingaleik við ÍA á Skipaskaga um árið en meira að segja þá beið Derby lægri hlut.Vonandi sér Þorvaldur Derby fagna á morgun.Vísir/GettyDerby er gamalt stórveldi og segist Þorvaldur líklega bara hafa ákveðið að halda með besta liðinu. Hann sé fæddur 1970 og lærði að lesa fjögurra ára gamall. „Derby varð Englandsmeistari tímabilið 1974-1975 þannig að líklega er það ástæðan. Síðan hef ég verið stuðningsmaður númer eitt,“ segir Þorvaldur. Knattspyrnuunnandinn eldhressi vill greinilega ekki styggja vongóða stuðningsmenn Derby fyrir stórleikinn á morgun. Leikið verður til þrautar á morgun og getur Derby tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni í fyrsta skipti í „Í ljósi sögunnar bið ég aðra stuðningsmenn hrútanna afsökunar fyrir fram,“ segir Þorvaldur og bætir við að eina von stuðningsmanna Derby sé sú að unnustan, sem komi nú með í fyrsta skipti, veiti þeim þá lukku sem til þurfi gegn QPR á morgun. „Að því sögðu, þá hélt hún reyndar með QPR þegar hún var yngri.“ Hér að neðan má sjá fagnaðarlætin sem brutust út meðal leikmanna og stuðningsmanna þegar sæti í úrslitaleiknum á Wembley var í höfn.Leikurinn á Wembley á morgun hefst klukkan 14 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Enski boltinn Mest lesið Ísland - Króatía | Brons í boði Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Man. Utd - Fulham | Heldur draumur Carricks áfram? Enski boltinn „Bæði lið eru á felgunni“ Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Fleiri fréttir Man. Utd - Fulham | Heldur draumur Carricks áfram? Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Sjá meira