Tvö frábær mörk á tveimur mínútum - City deildabikarmeistari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2014 15:54
Manchester City tryggði sér enska deildabikarinn með 3-1 sigri á Sunderland í úrslitaleik á Wembley í dag en þetta er í fyrsta sinn í 38 ára sem City-liðið vinnur þessa keppni. Manchester City vann þarna fyrsta titilinn af fjórum mögulegum á þessu tímabili en lærisveinar Manuel Pellegrini eru ennþá með í hinum þremur keppnunum. Pellegrini er þegar búinn að gera betur á sínu fyrsta tímabili heldur en Roberto Mancini í fyrra. Sunderland-liðið fékk samt algjöra draumabyrjun í leiknum þegar Fabio Borini, lánsmaður frá Liverpool, kom liðinu í 1-0 eftir aðeins tíu mínútna leik eftir að hafa verið grimmari í boltann en miðverðirnir Vincent Kompany og Demichelis. Sunderland var 1-0 yfir í hálfleik og átti forystuna skilið eftir mjög flottan hálfleik á móti stjörnuprýddu liði City. Þetta breyttist hinsvegar allt í seinni hálfleiknum og með tveimur stórglæsilegum mörkum. Leikurinn snérist við á aðeins einni mínútu og 45 sekúndum í byrjun seinni hálfleiksins. Yaya Toure jafnaði metin með frábæru langskoti af um 30 metra færi en þetta er eitt af flottustu mörkunum sem hafa verið skoruð á nýja Wembley. Innan við tveimur mínútum síðar var City-liðið komið yfir í leiknum en Samir Nasri skoraði þá með glæsilegu skoti af vítateigslínunni eftir fyrirgjöf frá Aleksandar Kolarov. Steven Fletcher fékk dauðafæri til að jafna metin í lokin en í stað þess brunaði City-liðið í skyndisókn þar sem að varamaðurinn Jesus Navas innsiglaði sigurinn. Þetta var skemmtilegur úrslitaleikur þar sem Sunderland stóð sig mjög vel á móti gríðarlega sterku liði Manchester City.Vísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Enski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti Fleiri fréttir Sunderland - Arsenal | Englandsmeistararnir halda til Sunderland Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira