Enski boltinn

Messan: Pardew varð sjálfum sér til skammar

Alan Pardew, knattspyrnustjóri Newcastle, sýndi af sér fádæma hegðun í leik Newcastle um síðustu helgi. Þá skallaði hann leikmann Hull.

"Einhvers staðar verður að stoppa. Hann hrinti línuverði í fyrra. Það eru tvær vikur síðan hann hraunaði yfir Pellegrini sem hefur ekki gert nokkrum manni illt. Þarna fer hann langt yfir strikið og verður sjálfum sér og klúbbnum til skammar. Það er ótrúlegt að hann sé enn í starfi," sagði Bjarni Guðjónsson í Messunni.

Atvikið umdeilda og umræðuna um skallann má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×