Enski boltinn

Defoe samdi við Toronto FC

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jermain Defoe fagnar marki.
Jermain Defoe fagnar marki. Nordic Photos/Getty
Tottenham staðfesti í morgun að sóknarmaðurinn Jermain Defoe muni ganga til liðs við Toronto FC, sem leikur í MLS-atvinnumannadeildinni, í lok febrúar.

Hinn 31 árs gamli Defoe kom fyrst til Tottenham fyrir áratug síðan. Hann samdi svo við Portsmouth árið 2008 en sneri aftur til Lundúna ári síðan. Hann á að baki 362 leiki með Tottenham og hefur skorað í þeim 142 mörk.

„Ég er þakklátur fyrir þetta tækifæri og að ég og fjölskylda mín fáum að kynnast því að búa og starfa í öðru landi,“ sagði Defoe á heimasíðu Tottenham.

„Ég verð 35 ára þegar að samningurinn minn við Toronto rennur út og hlakka ég til að spila í MLS-deildinni.“

Defoe mun þó spila með Tottenham þar til að hann heldur til Bandaríkjanna í lok næsta mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×