Kidderminster Harriers komst áfram í enska bikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2014 22:18 Leikmenn Kidderminster Harriers fagna sigrinum í kvöld. Mynd/NordicPhotos/Getty
Nokkrir leikir fóru fram í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld en þetta voru flestir endurteknir leikir þar sem umrædd lið gerðu jafntefli í fyrri leik sínum í byrjun mánaðarins. Úrvalsdeildarliðið Fulham, b-deildarliðin Bournemouth, Sheffield Wednesday, Watford, Wigan og Birmingham City og C-deildarliðin Port Vale og Preston North End komust öll áfram í 32 liða úrslitin í kvöld. Bikarævintýri kvöldsins var þó á London Road Stadium í Peterborough þar sem að utandeildarliðið Kidderminster Harriers sló út Peterborough United. Kidderminster Harriers unnu leikinn 3-2 en þau höfðu áður gert 0-0 jafntefli á heimavelli Kidderminster Harriers.Andy Thorn, knattspyrnustjóri Kidderminster Harriers, vann enska bikarinn með Wimbledon árið 1988. Darren Ferguson, sonur Sir Alex Ferguson, er aftur á móti knattspyrnustjóri Peterborough United. Kidderminster Harriers mætir úrvalsdeildarliði Sunderland á útivelli í 4. umferðinni.Darren Bent, Ashkan Dejagah og Steve Sidwell tryggðu Fulham 3-0 heimasigur á Norwich í eina úrvalsdeildarslag kvöldsins. Fulham mætir Sheffield United í 4. umferðinni. Bournemouth tryggði sér leik á móti Liverpool með 4-1 heimasigri á Burton Albion. Bikarmeistarar Wigan eru komnir áfram eftir 3-1 útisigur á Milton Keynes Dons eftir framlengdan leik. Wigan mætir Crystal Palace í næstu umferð.Úrslitin í ensku bikarkeppninni í kvöld: Birmingham - Bristol Rovers 3-0 Bournemouth - Burton Albion 4-1 Charlton - Oxford United 2-2 (spila aftur, frestaður leikir) Fulham - Norwich 3-0 Milton Keynes Dons - Wigan 1-3 (1-1, framlenging) Peterborough United - Kidderminster Harriers 2-3 Plymouth Argyle - Port Vale 2-3 Preston North End - Ipswich 3-2 Sheffield Wednesday - Macclesfield Town 4-1 Watford - Bristol City 2-0Stór stund fyrir leikmenn Kidderminster Harriers.Mynd/NordicPhotos/GettyJoe Lolley skoraði sigurmarkið í leiknum.Mynd/NordicPhotos/GettyDarren Ferguson, sonur Sir Alex Ferguson, er knattspyrnustjóri Peterborough United.Mynd/NordicPhotos/Getty
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Dagskráin í dag: Messan, meistarar Hauka, píla og NFL-veisla Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira