Toure segist ekki metinn að verðleikum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. apríl 2014 09:00 Yaya Toure fagnar marki í leik með Manchester City. Vísir/Getty
Yaya Toure segir að hann sé ekki talinn einn besti knattspyrnumaður heims vegna þess að hann er afrískur. Þetta segir hann í viðtali við fréttastofu BBC en hann telur að hann, ásamt Didier Drogba og Samuel Eto'o, sé vanmetinn sem knattspyrnumaður þar sem hann er frá Afríku. „Það eru bara stuðningsmennirnir sem hafa veitt okkur almennilega viðurkenningu,“ sagði Toure meðal annars í viðtalinu. „Ég vil ekki ræða þessi mál á neikvæðum eða ósanngjörnum nótum en ég vil vera heiðarlegur.“ Hann segir að fjölmiðlar eigi stóran þátt í þessu og að afrískir leikmenn þurfi að gera meira til að vekja athygli á sér. Spánverjarnir Iniesta og Xavi, fyrrum liðsfélagar Toure hjá Barcelona, séu til að mynda sjaldan gagnrýndir fyrir varnarmistök. Toure segist hins vegar fá að heyra það í fjölmiðlum í hvert sinn sem hann gerir mistök í vörn. Toure er enn fremur óánægður með að leikmenn eins og hann sjálfur séu ekki jafn þekktir og Lionel Messi. „Það er sama hvert þú ferð í Afríku - allir þekkja Messi. En fólk í Evrópu þekkir ekki Yaya Toure. Sumir þekkja nafnið en ekki andlitið mitt. En allir þekkja andlit Messi,“ sagði Toure. Hann hefur orðið meistari í fjórum löndum - Fílabeinsströndinni, Grikklandi, Spáni og Englandi. Hann var einnig í liði Barcelona sem vann allt sem hægt var að vinna árið 2009. Toure er 30 ára gamall og hefur skorað 22 mörk á tímabilinu til þessa. Hann segir að hann verði fyrir vonbrigðum verði hann ekki valinn leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni. „Ég er mjög stoltur af því að vera Afríkumaður. Ég vil koma afrísku fólki til varnar og sýna heiminum að afrískir leikmenn geta verið jafn góðir og þeir frá Evrópu og Suður-Ameríku.“
Enski boltinn Mest lesið Danmörk - Ísland 31-28 | Strákarnir okkar spila um bronsið Handbolti Aldrei séð Dag svona reiðan Handbolti Alfreð í úrslitaleikinn eftir sigur á Degi Handbolti „Ég hugsa að þetta sé EM-met“ Handbolti Ræða Dags bar árangur og EHF lofar breytingum Handbolti Tennisstjörnurnar fela hluti í nærfötunum Sport EM-Pallborðið: Rýndu í möguleika Íslands gegn Danmörku Handbolti „Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ Handbolti Sigvaldi verður ekki með í kvöld Handbolti „Gjörsamlega glórulaust“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira