Cruyff segir leikmann sem United vill fá ekki hafa neinn hraða Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. ágúst 2014 09:30 Daley Blind var kjörinn besti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar í fyrra. vísir/getty
Johann Cruyff, hollenska knattspyrnugoðsögnin, gagnrýndi landsliðsmanninn DaleyBlind harkalega eftir 3-1 tap Ajax gegn PSV Eindhoven í hollensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Blind spilaði allan leikinn á miðjunni, en hann getur bæði spilað á miðjunni og sem bakvörður. Þá var hann lykilmaður hjá hollenska landsliðinu sem náði þriðja sæti á HM. Manchester United hefur verið orðað við hann í allt sumar, ekki síst vegna þess að Louis van Gaal þjálfaði hann hjá hollenska landsliðinu, en talið er að United þurfi að borga Ajax 20 milljónir punda fyrir leikmanninn. Blind var kjörinn besti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, en Cruyff er langt frá því að vera jafnhrifinn af honum og margir. „Það spilaði enginn hjá Ajax almennilegan fótbolta á móti PSV. Menn þurfa að láta boltann ganga hratt á milli sín, en það er erfitt þegar þú ert með NickViergever og Daley Blind á miðjunni. Hvorugur þeirra hefur nokkurn hraða né hafa getu til að taka spretti,“ sagði Cruyff við Voetball International um tapið. Þrátt fyrir orð Cruyffs er ekki ólíklegt að Blind verði orðinn leikmaður Manchester United áður en félagaskiptaglugganum verður lokað 31. ágúst. Louis van Gaal vantar bæði varnarmenn og miðjumenn, en sem fyrr segir getur Blind leyst báðar stöður. Hann spilaði nánast jafnmarga leiki sem bakvörður og miðjumaður á síðustu leiktíð og var kjörinn besti leikmaður deildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Fótbolti Fleiri fréttir Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Sjá meira