Eggert rifjar upp árin hjá West Ham Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2014 11:06 Eggert Magnússon. Nordic Photos/Getty
Eggert Magnússon er í ítarlegu viðtali sem birtist á heimasíðu knattspyrnutímaritsins Four Four Two í vikunni.Fótbolti.net greindi frá viðtalinu á sinni síðu en Eggert segist þess fullviss að hlutirnir hefðu verið öðruvísi hjá West Ham hefði hann átt fullan eignarhlut í félaginu á sínum tíma.Björgólfur Guðmundsson átti langstærstan hlut í West Ham en fékk Eggert í lið með sér. Eggert, fyrrum formaður KSÍ, var gerður að stjórnarformanni félagsins. Þeir tóku við félaginu í nóvember 2006 en ævintýrið féll um sjálft sig eftir bankahrunið á Íslandi á sínum tíma. David Sullivan og David Gold tóku félagið yfir árið 2010 og gagnrýndu forvera sína harkalega. „Það virðist algengt að nýtt fólk sjái ástæðu til að gagnrýna þá sem á undan voru. Það er svipað með knattspyrnustjóra - það fyrsta sem þeir segja er að leikmennirnir eru ekki í standi til að spila knattspyrnu,“ sagði Eggert í viðtalinu sem má lesa hér. „Það hefur margt gott gerst hjá West Ham síðust ár en líka mörg mistök gerð. Þannig er það í lífinu og í fótboltanum. Maður tekur ákvarðanir - sumar eru réttar og sumar rangar. Ef maður tekur aldrei ákvarðanir þá gerist heldur aldrei neitt.“ Það er komið víða við í viðtalinu og rifjað upp þegar Björgólfur bað Eggert um að taka þátt í West Ham-ævintýrinu með sér. Hann segist hafa blendnar tilfinningar gagnvart þessum árum. „Ef ég hefði átt félagið einn hefði ég staðið allt öðruvísi að hlutunum. En ég hefði kannski aldrei farið af stað í þetta hefði ég vitað þá það sem ég veit nú,“ sagði Eggert Magnússon.
Enski boltinn Mest lesið Tindastóll - Stjarnan | Sópur í Síkinu? Körfubolti Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Golf Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Sjá meira