Auðvelt hjá City sem jafnaði Chelsea að stigum | Sjáðu mörkin Anton Ingi Leifsson skrifar 20. desember 2014 00:01 Yaya Toure, leikmaður City. vísir/getty
David Silva skoraði bæði mörk Manchester City í sigri Manchester City á Crystal Palace í hádegisleik enska boltans í dag. Fyrri hálfleikur var afar tíðindalítill, en gestirnir fengu besta færið þegar Fraizer Campbell skaut boltanum rétt framhjá úr bakfallspyrnu. Markalaus var staðan í hálfleik, en David Silva kom heimamönnum yfir eftir fjórar mínútur í síðari hálfleik. Hann skaut þá í varnarmann Palace og inn fór boltinn. Silva var aftur á ferðinni tólf mínútum síðar þegar hann lagði boltann í netið eftir frábæra sendingu frá Aleksandar Kolarov. Ranglega var svo mark dæmt af Palace í stöðunni 2-0, en aðstoðardómarinn flaggaði þá rangstöðu sem var kolrangur dómur. Yaya Toure kláraði svo dæmið með glæsilegu skoti úr þröngu færi í vítateignum eftir góða skyndisókn. Lokatölur urðu 3-0, en með sigrinum fór City upp að hlið Chelsea í toppsætinu. City er með lakari markatölu, en Chelsea á einnig leik til góða. Palace er í sextánda sæti með fimmtán stig og er í bullandi fallbaráttu.Silva kemur City yfir: Silva tvöfaldar forystuna: Toure með þriðja mark City:
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira