Ísland á móti Manchester-borg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. nóvember 2013 08:00 Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson. Mynd/NordicPhotos/Getty
Enska úrvalsdeildin fer aftur af stað með látum um helgina en það er nóg af áhugaverðum leikjum í dag og á morgun. Stórleikur umferðarinnar er jafnframt fyrsti leikur helgarinnar þegar Everton tekur á móti Liverpool á Goodison Park í hádeginu í dag en á morgun glíma Íslendingaliðin Cardiff og Tottenham við risaliðin frá Manchester-borg. Everton-menn hafa verið fyrir ofan Liverpool í töflunni undanfarin tvö tímabil en eini sigur liðsins í síðustu þrettán leikjum liðsins á móti nágrönnunum var í október 2010. Liverpoll hefur unnið sjö þessara leikja (fimm jafntefli) og haldið átta sinnum hreinu. Everton hefur ekki tapað í fjórtán heimaleikjum á árinu 2013 (10 sigrar, 4 jafntefli) en mætir nú sjóðheitu Liverpool-liði sem er 11 stigum og 11 sætum á undan árangri síns fyrir ári. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Tottenham fara í heimsókn til Manchester City klukkan 13.30 á morgun. Tottenham hefur aðeins fengið eitt stig út úr tveimur síðustu leikjum sínum og er komið niður í 7. sæti. City hefur sýnt veikleikamerki á útivelli en á Etihad-leikvangnum er liðið með fullt hús og 20 mörk í fimm leikjum á þessu tímabili. Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City taka á móti Englandsmeisturum Manchester United klukkan 16.00 á morgun og eiga möguleika á að ná Manchester-tvennu því Cardiff vann 3-2 sigur á City-liðinu fyrr í vetur. Manchester United hefur unnið þrjá leiki í röð og virðist vera að finna taktinn undir stjórn Davids Moyes. Topplið Arsenal tekur á móti spútnikliði Southampton klukkan þrjú í dag en Southampton gæti náð toppsætinu með sigri á Emirates. Beinar útsendingar á sportstöðvum Stöðvar tvö um helginaLaugardagur 12.45 Everton-Liverpool, enska úrvalsdeildin [Stöð 2 Sport 2] 15.00 Arsenal-South, enska úrvalsdeildin [Stöð 2 Sport 2] 15.00 Newcastle-Norwich, enska úrvalsdeildin [Stöð 2 Sport 4] 15.00 Stoke-Sunderland, enska úrvalsdeildin [Stöð 2 Sport 5] 15.00 Fulham-Swansea, enska úrvalsdeildin [Stöð 2 Sport 6] 15.00 Barcelona-Granada, spænski fótboltinn [Stöð 2 Sport 3] 16.00 Tímataka í Brasilíu, formúla eitt [Stöð 2 Sport] 17.30 West Ham-Chelsea, enska úrvalsdeildin [Stöð 2 Sport 6] 19.00 Almeria-Real Madrid, spænski fótboltinn [Stöð 2 Sport]Sunnudagur 13.30 Man.City-Tottenham, enska úrvalsdeildin [Stöð 2 Sport 2] 14.00 Flensburg-Kiel, þýski handboltinn [Stöð 2 Sport] 15.30 Brasilíukappaksturinn, formúla eitt [Stöð 2 Sport] 16.00 Cardiff-Manchester United, enska úrvalsdeildin [Stöð 2 Sport 2]
Enski boltinn Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira