Knattspyrnugoðsögn hjá Arsenal orðin heimilislaus Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. ágúst 2013 15:00 Samson lyftir Englandsmeistaratitlinum með Arsenal. Nordicphotos/Getty
Kenny Sansom, fyrrum leikmaður Arsenal og þrautreyndur landsliðsmaður Englands, hefur viðurkennt að hann sé í dag heimilislaus. Sansom segir í viðtali við The Sun hafa glímt við áfengisvandamál lengi auk þess að eiga við spilafíkn að stríða. „Ég hef verið heimilislaus í tíu daga," segir Sansom í viðtalinu þar sem hann segist sofa á bekkjum í almenningsgörðum. Fjölskylda hans hefur miklar áhyggjur og segir Sansom hafa horfið og aðeins eiga 20 pund í vasanum. Hann hafi rétt heimsótt systur sína en svo haldið út í óvissuna.Sansom (til vinstri) bregður á leik með Viv Anderson, Chris Waddle og Tony Adams. Adams átti einnig við áfengisneyslu að stríða í langan tíma.Nordicphotos/Getty„Ástæðan er sú að ég á enga peninga og er fyllibytta. Mér líður illa og ég er fjárhættuspilar," segir Sansom. Varnarmaðurinn spilaði á sínum tíma 86 landsleiki fyrir England og er sannarlega goðsögn hjá stuðningsmönnum Arsenal. Sansom hafði um 1200 pund í vikulaun þegar best lét hjá Arsenal sem svarar til rúmlega 200 þúsund íslenskra króna á núvirði. Óhætt er að fullyrða að Sansom hefði haft mun hærri tekjur væri hann atvinnumaður í dag. Engu að síður lifði hann flottu lífi, bjó í húsi sem metið var á um 200 milljónir króna og spilaði tvívegis með Englandi á heimsmeistaramótum.Samson (lengst til vinstri í fremri röð) með Englandi á HM í Mexíkó árið 1986.Nordicphotos/GettySansom er fráskilinn og hefur selt flestar landsliðstreyjur sínar til að fjármagna áfengisneyslu sína. Fjölmargir breskir knattspyrnumenn hafa átt í vandræðum með áfengisneyslu eða spilafíkn í gegnum tíðinda. Má þar nefna Paul Gascoigne, Paul McGrath og Paul Merson sem dæmi.
Enski boltinn Mest lesið Donald Trump sást svindla á golfvellinum Golf Fékk meira að segja kveðju frá sínum helsta óvini Sport „Ef ég geri það ekki þá mun ég kannski sjá eftir því alla ævi“ Sport Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir Sport Grét þegar hann var kynntur hjá nýju félagi Fótbolti Viðurkennir að prumpið sem heyrðist um allan heim sé hans Golf Brella Englendinga sem gæti hafa tryggt þeim EM-gullið Fótbolti Sú besta í áfalli og baðst afsökunar Fótbolti Kóngafólkið eys lofi yfir enska liðið Fótbolti Með átta mörk og sex stoðsendingar í sama leiknum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýtt undrabarn hjá Arsenal Flúraði sig til minningar um Jota Flýr Ten Hag og semur við Sunderland Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer Gyökeres í flugvél á leið til London Sádarnir spenntir fyrir Antony Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Eigendur Man. City græða pening á kaupum Man. United Bað sjálfur um frí og vill fara frá Newcastle Úlfarnir kaupa kólumbíska Pelé Isak fer ekki í æfingaferðina Son eftirsóttur í LA og Tottenham tilbúið að selja en ekki strax Zubimendi fór ekki til Liverpool af því að hann vildi gæðaþjálfara Eiginkona Diogo Jota með vasaklútaskilaboð Liverpool staðfestir Ekitike og fljúga honum strax til Hong Kong Fyrsti bikar í húsi hjá Arsenal Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Sjá meira