Tottenham hefði getað hagnast um 900 milljónir með sölunni á Gylfa Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. febrúar 2013 09:00 Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Forráðamenn enska úrvalsdeildarfélagsins Reading reyndu ítrekað að kaupa landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson til félagsins frá Tottenham. Brian McDermott, stjóri liðsins, staðfesti að félagið hefði gert þrjú tilboð, sem öllum hefði verið hafnað. Staðarblöð í Reading greindu frá því að tilboðið hefði hljómað upp á rúmar tíu milljónir punda. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var lokatilboð Reading tólf milljónir punda, rétt tæplega 2,4 milljarðar ísl. kr. Tottenham keypti Gylfa í sumar á 7,5 milljónir punda samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, eða 1,5 milljarða króna. Samkvæmt þessu hefði Tottenham því getað hagnast um 900 milljónir króna á Gylfa á aðeins hálfu ári. Eigandi Reading er Anton Zingarevich, sem frestaði för sinni frá Englandi í gær til að reyna að ganga frá kaupunum. „Hann reyndi allt sem hann gat. Við vorum öll spennt fyrir þeim möguleika að fá Gylfa aftur en hann er leikmaður Tottenham í dag og góður leikmaður þar að auki," sagði McDermott. Gylfi kom til Reading á sextánda aldursári árið 2005 og var hjá félaginu í fimm ár. Þaðan fór hann til Hoffenheim í Þýskalandi en var svo seldur til Tottenham í sumar, eftir að hafa slegið í gegn sem lánsmaður hjá Swansea á seinni hluta síðasta tímabils. Gylfi hefur fengið fá tækifæri í byrjunarliði Tottenham til þessa en greinilegt er að forráðamenn liðsins hafa mikla trú á honum og telja að hann verði því mikilvægur á næstu árum.
Enski boltinn Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Fleiri fréttir Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Sjá meira