Erlent

Ísraelskar landnemabyggðir rísa á ný á Vesturbakkanum

Magnús Þ. Lúðvíksson skrifar
Kerry og Livni John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundaði með Tzipi Livni, dómsmálaráðherra Ísraels, um hvernig hefja mætti friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna á ný í Róm í vikunni.Fréttablaðið/AP
Kerry og Livni John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundaði með Tzipi Livni, dómsmálaráðherra Ísraels, um hvernig hefja mætti friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna á ný í Róm í vikunni.Fréttablaðið/AP
Ísraelsk stjórnvöld hafa gefið grænt ljós á að hafnar verði framkvæmdir við næstum 300 íbúðarhús í landnemabyggð á Vesturbakkanum. Palestínumenn hafa mótmælt áformunum harðlega og þá er talið að þau geti flækst fyrir tilraunum Bandaríkjamanna til að hefja á ný friðarviðræður milli þjóðanna.

Athygli vekur að ákvörðun Ísraelsstjórnar er tekin á sama tíma og John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundar með Tzipi Livni, dómsmálaráðherra Ísraels og aðalsamningamanni landsins í friðarviðræðunum, í Róm. Í viðtölum við fjölmiðla gerði Livni lítið úr ákvörðuninni.

Til stendur að reisa 296 íbúðarhús í Beit El-landnemabyggðinni en ákvörðunin var tekin á miðvikudag. Framkvæmdir gætu hafist á næsta ári fáist öll tilskilin leyfi til framkvæmdanna eins og búist er við.

Að undanförnu hafa ísraelsk stjórnvöld gert hlé á byggingu íbúða í landnemabyggðum. Var það túlkað sem viðleitni til þess að ýta undir friðarviðræðurnar sem Kerry hefur reynt að koma af stað á ný.

Bygging landnemabyggða á Vesturbakkanum er einn helsti ásteytingarsteinninn í deilu Ísraels og Palestínu. Palestínumenn neita að hefja friðarviðræður að nýju á meðan Ísraelar halda áfram byggingu landnemabyggða á Vesturbakkanum og í Austur-Jerúsalem. Palestínumenn telja bæði svæðin eiga að vera hluta af framtíðarríki þjóðarinnar en Ísraelar lögðu svæðin undir sig í Sex daga stríðinu árið 1967.

Palestínumenn brugðust ókvæða við ákvörðun Ísraela og segja hana tekna í þeim tilgangi að skemma fyrir friðarumleitunum Kerrys og Baracks Obama Bandaríkjaforseta.

Livni segir hins vegar að ekki eigi að leggja of mikla þýðingu í nýju íbúðarhúsin. Til standi að reisa þau og afhenda landnemum sem misstu hús sín þegar dómstóll í Ísrael dæmdi að tæma þyrfti landnemabyggðina Ulpuna í fyrra. Hafði hún verið reist á landi sem var í einkaeigu Palestínumanns. Framkvæmdirnar tákni hins vegar ekki stefnubreytingu af hálfu ísraelskra stjórnvalda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×