Ísraelskar landnemabyggðir rísa á ný á Vesturbakkanum Magnús Þ. Lúðvíksson skrifar 10. maí 2013 07:00 Kerry og Livni John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundaði með Tzipi Livni, dómsmálaráðherra Ísraels, um hvernig hefja mætti friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna á ný í Róm í vikunni.Fréttablaðið/AP
Ísraelsk stjórnvöld hafa gefið grænt ljós á að hafnar verði framkvæmdir við næstum 300 íbúðarhús í landnemabyggð á Vesturbakkanum. Palestínumenn hafa mótmælt áformunum harðlega og þá er talið að þau geti flækst fyrir tilraunum Bandaríkjamanna til að hefja á ný friðarviðræður milli þjóðanna. Athygli vekur að ákvörðun Ísraelsstjórnar er tekin á sama tíma og John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundar með Tzipi Livni, dómsmálaráðherra Ísraels og aðalsamningamanni landsins í friðarviðræðunum, í Róm. Í viðtölum við fjölmiðla gerði Livni lítið úr ákvörðuninni. Til stendur að reisa 296 íbúðarhús í Beit El-landnemabyggðinni en ákvörðunin var tekin á miðvikudag. Framkvæmdir gætu hafist á næsta ári fáist öll tilskilin leyfi til framkvæmdanna eins og búist er við. Að undanförnu hafa ísraelsk stjórnvöld gert hlé á byggingu íbúða í landnemabyggðum. Var það túlkað sem viðleitni til þess að ýta undir friðarviðræðurnar sem Kerry hefur reynt að koma af stað á ný. Bygging landnemabyggða á Vesturbakkanum er einn helsti ásteytingarsteinninn í deilu Ísraels og Palestínu. Palestínumenn neita að hefja friðarviðræður að nýju á meðan Ísraelar halda áfram byggingu landnemabyggða á Vesturbakkanum og í Austur-Jerúsalem. Palestínumenn telja bæði svæðin eiga að vera hluta af framtíðarríki þjóðarinnar en Ísraelar lögðu svæðin undir sig í Sex daga stríðinu árið 1967. Palestínumenn brugðust ókvæða við ákvörðun Ísraela og segja hana tekna í þeim tilgangi að skemma fyrir friðarumleitunum Kerrys og Baracks Obama Bandaríkjaforseta. Livni segir hins vegar að ekki eigi að leggja of mikla þýðingu í nýju íbúðarhúsin. Til standi að reisa þau og afhenda landnemum sem misstu hús sín þegar dómstóll í Ísrael dæmdi að tæma þyrfti landnemabyggðina Ulpuna í fyrra. Hafði hún verið reist á landi sem var í einkaeigu Palestínumanns. Framkvæmdirnar tákni hins vegar ekki stefnubreytingu af hálfu ísraelskra stjórnvalda.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira