Er mars mánuðurinn hans Gylfa? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2013 08:00 Gylfi og Gareth Bale fagna marki.
Gylfi Þór Sigurðsson átti þátt í tveimur af þremur mörkum Tottenham í 3-0 sigri á Internazionale í fyrrakvöld í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Gylfi lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Gareth Bale og skoraði síðan annað markið sjálfur, en það var fyrsta mark hans á White Hart Lane. Gylfi hefur nú átt þátt í marki hjá Tottenham í þremur leikjum í röð og hefur komið sér framar í goggunarröðinni meðal miðjumanna liðsins. Markið sem hann skoraði eftir að hafa komið inn á sem varamaður á móti West Ham létti mikilli pressu af Gylfa, sem hefur litið út eins og nýr og endurfæddur maður í undanförnum tveimur leikjum. Báðir hafa þetta verið stórleikir og í þeim báðum var Gylfi í byrjunarliðinu. Frammistaða Gylfa er mikið ánægjuefni enda voru efasemdaraddir farnar að heyrast eftir að hann fékk fá sem engin tækifæri í byrjunarliði André Villas-Boas, knattspyrnustjóra Tottenham, frá nóvember til febrúar. Gareth Bale skoraði markið sitt í fyrrakvöld með laglegum skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Gylfa af vinstri kantinum. Gylfi var að leggja upp mark fyrir Bale annan leikinn í röð því Bale skoraði eftir glæsilega stungusendingu íslenska landsliðsmannsins í sigrinum á Arsenal um síðustu helgi. Gylfi hafði einnig gefið stoðsendingu á Bale í sigri á Aston Villa á annan í jólum, en Bale innsiglaði þá þrennu sína eftir sendingu frá Gylfa. Þeir Gylfi og Bale eru jafnaldrar (fæddir 1989) og ná greinilega vel saman inni á vellinum. Nú þarf bara Bale að fara að jafna leikinn og gefa nokkrar stoðsendingar á Gylfa. Það ætti kannski ekki að koma mikið á óvart að Gylfi fari í gang á þessum tíma ársins því undanfarin tvö tímabil hans í enska boltanum, með Swansea 2012 og með Reading 2010, hefur hann farið á kostum í marsmánuði. Gylfi Þór var í miklu stuði með Reading-liðinu í mars 2010, en hann skoraði fimm mörk og lagði upp önnur fjögur mörk í leikjum liðsins í ensku b-deildinni í mánuðinum. Hann skoraði einnig eitt mark í fyrsta leik aprílmánaðar. Gylfi fékk ekki að spila mikið með Hoffenheim í mars 2011 og átti ekki þátt í neinu marki á þeim 86 mínútum sem hann spilaði í þýsku deildinni í mánuðinum. Gylfi var frábær með Swansea-liðinu í mars í fyrra og skoraði meðal annars tvö mörk í tveimur leikjum í mánuðinum. Hann var síðan kosinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í mánuðinum og varð fyrsti íslenski leikmaðurinn sem hlýtur slík verðlaun. Fram undan er leikur Tottenham á móti Liverpool á Anfield Road, sem hefði allt eins getað verið heimavöllur Gylfa í vetur. Hann valdi Tottenham frekar en að spila fyrir sinn gamla stjóra Brendan Rodgers, sem var með hann hjá bæði Reading og Swansea. Það verður því fróðlegt að sjá hvað Gylfi gerir í leiknum á sunnudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Fótbolti Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira