Nýjasti meðlimurinn í heimsklassaklúbbnum? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2013 07:30 Bale í leik með Tottenham. Nordic Photos / Getty Images
20. október 2010 varð Gareth Bale að stjörnu þegar hann skoraði þrennu í 3-4 tapi á móti Internazionale á San Siro í Meistaradeildinni. Þá sýndi hann án nokkurs vafa að þar var á ferðinni leikmaður sem gat spjarað sig á stóra sviðinu. Undanfarna mánuði höfum við aftur séð fullþroskaðan leikmann sem hefur gert útslagið í hverjum leiknum á fætur öðrum. Fyrir vikið eru Gylfi Þór Sigurðsson og félagar komnir í lykilstöðu í baráttu um meistaradeildarsæti í ensku úrvalsdeildinni og mæta í kvöld Internazionale í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Heimsklassamaður telst meðal annars vera maður sem býr til eitthvað rosalegt úr engu eða gerir útslagið í jöfnum leikjum. Þetta höfum við séð Lionel Messi og Cristiano Ronaldo gera margoft á síðustu árum og síðasta mánuðinn erum við farin að sjá þetta nánast í hverjum leik hjá Gareth Bale. Gareth Bale er meira segja búinn að gera betur en þeir Cristiano Ronaldo og Lionel Messi á síðustu fimm vikum enda með tíu mörk í síðustu átta leikjum sínum fyrir Wales og Tottenham. Hann hefur skorað í þeim öllum og flest markanna hafa verið af dýrari gerðinni þar sem skotkraftur, snerpa og áræðni þessa 23 ára leikmanns hefur verið til sýnis. Það hefur mikið breyst síðan Gareth Bale steig fyrstu sporin sín með Tottenham og varð að hálfgerðu aðhlátursefni þegar liðið ætlaði aldrei að vinna með hann innanborðs. Alls lék hann 24 leiki með Tottenham áður en hann var í fyrsta sinn í sigurliði. Í dag er Bale hins vegar maður sem sá nánast um það upp á eigin spýtur að Tottenham-liðið er búið að vinna fjóra leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni og jafnframt búið að leika tólf deildarleiki í röð án þess að tapa. Tottenham keypti hann frá Southampton í maí 2007 þegar hann var ekki orðinn 18 ára gamall. Hann hafði áður verið næstyngsti Southampton frá upphafi en er nú þrátt fyrir ungan aldur að spila sitt sjötta tímabil á White Hart Lane. „Hann gerir gæfumuninn fyrir liðið þessa dagana. Hann er gríðaröflugur leikmaður og hann virkar mjög hvetjandi á alla aðra í liðinu. Þegar Gareth er að spila í þessum ham hefur það bein áhrif á alla leikmenn," sagði knattspyrnustjórinn André Villas-Boas. „Það er erfitt að finna orð til að lýsa leik hans. Hann er að skora mikilvæg mörk sem komast í fyrirsagnirnar. Þegar þú ert með heimsklassaleikmann eru þeir liðinu mikil lyftistöng," sagði liðsfélagi hans Scott Parker um Bale. Michael Dawson, fyrirliði Tottenham, sparar heldur ekki hrósið til Bale. „Hann er kominn upp í hóp með þeim Ronaldo og Messi hvað snertir getu. Hann er einn af bestu fótboltamönnum heims þessa stundina og ég get ekki séð neinn sem er að spila betur hann einmitt núna. Sumt að því sem hann er að gera fengi Ronaldo til að roðna," sagði Michael Dawson. Bale sjálfur er hógværðin uppmáluð. „Ég nýt þess bara að spila fótbolta og það skiptir mig mestu máli. Liðið er að spila vel sem gerir allt miklu auðveldara en þetta snýst ekki um mig heldur Tottenham-liðið," sagði Gareth Bale. Hvort Bale fær áskrift að heimsklassaklúbbi þeirra Lionel Messi og Cristiano Ronaldo á eftir að koma í ljós enda eigum við eftir að sjá Bale halda áfram á þessu skriði út þetta tímabil. Fyrsta prófið af mörgum fram undan er á White Hart Lane í kvöld þegar Tottenham tekur á móti Internazionale.
Enski boltinn Mest lesið Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Körfubolti Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Enski boltinn Williams mun spila í einliða leik á Opna bandaríska risamótinu Sport Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Formúla 1 „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Íslenski boltinn Rodri genginn í raðir Barcelona Fótbolti Semur aftur við Corinthians nokkrum dögum eftir að hafa úthúðað félaginu Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Fleiri fréttir Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sjá meira