Sýrlandsstjórn afhendir Rússum sönnunargögn Guðsteinn Bjarnason skrifar 18. september 2013 13:15 Skriðdreki frá sýrlenska hernum brennur í Damaskus. Mynd/AP
Rússar segjast hafa fengið gögn sem sanni að uppreisnarmenn hafi beitt efnavopnum í Sýrlandi. Sergei Ríabkov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, fullyrti þetta í morgun. Hann er staddur í Sýrlandi þar sem hann hittir meðal annars Bashar al Assad Sýrlandsforseta. Efnavopnareftirlit Sameinuðu þjóðanna hefur staðfest, með rannsóknum á vettvangi, að efnavopn hafi verið notuð gegn almenningi í úthverfum Damaskusborgar í síðasta mánuði. Í skýrslu rannsóknarteymisins er ekkert fullyrt um hvort stjórnvöld eða uppreisnarmenn hafi notað efnavopnin, en stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi hafa fullyrt að allt bendi til þess að það hafi verið sýrlenski stjórnarherinn sem stóð að þeim árásum. Rússar hafa frá upphafi lýst miklum efasemdum um að Sýrlandsstjórni hafi átt hlut að máli, og segja miklu meiri líkur á því að uppreisnarmenn hafi gert efnavopnaárásir, og þá líklega í þeim tilgangi að koma sökinni á stjórnarherinn. Rússar hafa verið andvígir því, að í ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem nú er í smíðum, verði harðorð refsiákvæði þar sem valdbeitingu verði hótað standi Sýrlandsstjórn ekki við loforð um að láta efnavopn sín af hendi. Ríabkov sagði ekkert um það, hvers konar sönnunargögn Sýrlendingar hafa látið Rússum í té. Hins vegar hafi Rússar tilhneigingu til að taka mark á þessum gögnum.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Fleiri fréttir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Sjá meira