Reina ósáttur með vinnubrögð Liverpool Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. júlí 2013 11:15 Pepe Reina er uppalinn hjá Barcelona. Nordicphotos/Getty
Pepe Reina hefur ritað stuðningsmönnum enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool bréf. Þar segist hann hafa viljað framlengja samning sinn við félagið en forráðamenn Liverpool hafi kosið að senda hann á lán til Napólí. Hjá ítalska félaginu hittir Reina fyrir landa sinn Rafa Benitez sem stýrði á sínum tíma liði Liverpool. Reina segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með vinnubrögð forráðamanna Liverpool sem samþykktu að lána hann án þess að bera það undir hann. „Ég taldi mig eiga betra skilið þótt ég skilji vel að stundum þurfi að taka erfiðar ákvarðanir í knattspyrnuheiminum." Reina viðurkennir að hann hefði haft áhuga á að ganga í raðir Barcelona. Gengi það ekki eftir væri hans fyrsti kostur að verja áfram markið hjá Liverpool. „Ég sagði stjóranum að ég vildi spila með Liverpool og aðeins yfirgefa Anfield ef Barcelona væri möguleiki. Þá ætti ég möguleika á að snúa til míns heima," skrifar Reina. Hann segist hafa heyrt sterkan orðróm um áhuga Barcelona á sér. „Þegar ekkert boð kom var ég tilbúinn að berjast fyrir sæti mínu í liði Liverpool. Því var ég hissa þegar talið var best fyrir félagið að ég yrði lánaður til Napólí," segir Reina. Þá þakkar Reina stuðningsmönnum fyrir stuðninginn í gegnum árum og segir félagið það yndislegasta á Englandi. Bréfið birti Pepe Reina á heimasíðu sinni, www.pepereina25.com, sem virðist ekki aðgengileg á þeim tíma sem fréttin er rituð. Guardian hefur unnið frétt upp úr bréfinu en hana má finna hér.
Enski boltinn Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Fótbolti Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Sjá meira