Erlent

Samkynhneigðir fá að giftast í kirkjum á Grænlandi

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Frá Grænlandi.
Frá Grænlandi. Nordicphotos/AFP
Danska stjórnin hefur kynnt frumvarp um að prestar á Grænlandi megi vígja samkynhneigð pör til hjónabands.

Sofie Petersen, biskup á Grænlandi, hefur lýst því yfir að hún sé fylgjandi þessu. Að sögn grænlensku útvarpsstöðvarinnar KNR eru þó misjafnar skoðanir á þessu meðal presta á Grænlandi.

Nýja fyrirkomulagið á að taka gildi um mitt næsta ár, verði frumvarpið að lögum. Bæði danska þjóðþingið og grænlenska landsþingið þurfa að veita samþykki sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×