Samkvæmt Health Day, tímariti sem helgar sig heilsu og heilbrigði, kemur á daginn að aðeins 0,3 til 0,4 prósent kynferðislegar hegðunar má rekja til notkunar eða tengja áhorfi á klám.
Rannsóknin var umfangsmikil og var gerð í Hollandi. 4.600 ungmenni á aldrinum 15 til 25 ára voru spurð spjörunum úr; hversu mikið klám þau horfðu á og hvers konar klám, hvers konar kynlífsreynslu þau ættu að baki, með hversu mörgum þau höfðu stundað kynlíf með, hvort þau hafi borgað fyrir kynlíf auk fjölmargra annarra spurninga. Í ljós kom að ekkert orsakasamband er á milli þess hversu mikið eða hvernig klám fólk horfir á og svo hvernig kynlíf það stundar.
Gert Martin Hald, sálfræðingur við Kaupmannahafnarháskólann í Danmörku, fullyrðir í samtali við Health Day að klám sé ekki sá mikli skaðvaldur og margir vilja vera láta og vilja tengja áhættusamri kynlífshegðan ungs fólks. Gláp á klám hefur hverfandi áhrif á kynlífshegðan.
Sjá nánar hér.
Hverfandi áhrif klámgláps
Jakob Bjarnar skrifar
