Enski boltinn

Bent tryggði Fulham sigur | Markalaust hjá Hull og Villa

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Martin Jol og félagar fögnuðu sigurmarki Bent vel.
Martin Jol og félagar fögnuðu sigurmarki Bent vel. Nordicphotos/Getty
Darren Bent skoraði eina mark leiksins þegar Fulham vann 1-0 heimasigur á Stoke í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikmönnum Hull og Aston Villa tókst ekki að skora.

Leikurinn á Craven Cottege í dag var jafn og spennandi. Hvorugu liðinu gekk vel framan við markið en Bent kom Fulham til bjargar á 83. mínútu. Stoke vildi fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar Brede Hangeland braut á Steven Ireland innan teigs en ekkert var dæmt.

Fulham hefur sjö stig eftir sigurinn eða jafnmörg og Stoke.

Á KC Stadium var Aston Villa sterkari aðilinn gegn nýliðum Hull en tókst ekki að finna leiðina í markið. Hull hefur ellefu stig um miðja deild en Aston Villa hefur tíu stig.

Staðan í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×