Gylfi segir hegðun Gareth Bale til skammar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. mars 2013 13:27 Mynd/Nordic Photos/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson segir til skammar að velski knattspyrnumaðurinn Gareth Bale hafi skírt dóttur sína í höfuðið á knattspyrnustjóra Tottenham, Andre Villas-Boas. Gylfi Þór Sigurðsson var í skemmtilegu viðtali í útvarpsþættinum FM 95BLÖ og sló á létta strengi. Gylfi fór á kostum í landsleik Íslands gegn Slóveníu í undankeppni HM 2014 á föstudaginn. Gylfi skoraði bæði mörk Íslands í 2-1 sigri en fyrra markið var úr aukaspyrnu langt utan af velli. Gylfi hefur æft aukaspyrnur sérstaklega frá unga aldri en grínaðist með það að lukkan hefði einfaldlega verið með honum í þetta skiptið. Verð að sýna þeim aukaspyrnunaMynd/AP„Þetta var bara algjör heppni. Þeir voru almennilegir við mig og leyfðu mér að taka hana (innsk: aukaspyrnuna). Vonandi fæ ég að taka fleiri eftir þetta," sagði Gylfi. Landsliðsmaðurinn hefur ekki fengið að taka margar aukaspyrnur hjá Tottenham en vonandi breytist það. „Ég verð að sýna þeim aukaspyrnuna ef þeir hafa ekki séð hana nú þegar. Maður verður að gera eitthvað til að fá að taka þær," sagði Gylfi léttur. Hann segir markið sitt flottasta ásamt þrumufleyg sínum gegn U21 árs landsliði Skotlands í umspilsleikjunum fyrir EM 2011. Gylfi verður í banni þegar Ísland tekur á móti Slóveníu í byrjun júní. Gylfi fékk gult spjald í 1-0 sigurleik Íslands í Albaníu fyrir að fagna sigurmarki sínu með því að fara úr að ofan. Í Slóveníu reif hann niður sóknarmann Slóvena sem var að komast í gott færi. „Auðvitað sé ég eftir því núna fyrst það gerðist ekkert í þessari sókn. Hann var á leiðinni inn í boxið og ég vissi ekki hvað var að fara að gerast. Ég mat að ég þyrfti að reyna að stoppa þetta." Gerrard er tuddiMynd/Nordic Photos/GettySeinna mark Gylfa var einnig glæsilegt. Hann fékk þá sendingu frá Eiði Smára Guðjohnsen, sem hafði verið inni á vellinum í aðeins tvær mínútur. Gylfi tók frábærlega við knettinum, skapaði sér færi með sinni fyrstu snertingu og fíflaði markmanninn upp úr skónum. Samir Handanovic, markvörður Inter, lagðist til vinstri og Gylfi lagði boltann í hitt hornið. „Ég gaf honum augun eins og ég væri að fara að setja boltann í fjærhornið og rúllaði honum í nær," segir Gylfi og tekur undir að líklega sé ekkert mikilvægara knattspyrnumönnum en góður skammtur af sjálfstrausti. Það hafi hann þessa dagana. Tottenham á í harðri keppni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Hann telur Chelsea helsta keppinaut Spurs en Arsenal geti þó enn komið tilbaka á lokasprettinum. Hafnfirðingurinn var beðinn um að meta þá leikmenn sem hefðu reynst honum erfiðastir á tímabilinu. Gylfi þurfti að hugsa sig um í nokkrar sekúndur en nefndi svo Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool. „Gerrard er tuddi og það er leiðinlegt að spila við hann. Aguero og Silva eru líklega erfiðustu leikmennirnir," segir Gylfi sem er sáttur við sína fyrstu leiktíð hjá Tottenham. Til skammar hjá BaleMynd/Nordic Photos/Getty„Það kom smá tímabil þar sem ég byrjaði ekki alla leiki. Ég hef komið inná í flestum leikjum og verið að byrja upp á síðkastið. Fyrir tímabilið bjóst ég kannski ekki við því að spila svona mikið á mínu fyrsta tímabili," sagði Gylfi. Gareth Bale, skærasta stjarna Tottenham, hefur farið á kostum á tímabilinu. Var borið undir Gylfa hvort Walesverjinn væri ekki heldur mikil sleikja þegar kæmi að stjóranum, Andre Villas-Boas. „Hann skírði dóttur sína eftir honum. Þetta er fáránlegt," sagði Gylfi hlæjandi og bætti við léttur: „Það er til skammar að gera þetta." Vísar Gylfi þar í að Bale skírði dóttur sína Alba Violet Bale en upphafsstafirnir, AVB, eru þeir sömu og hjá portúgalska stjóranum. Var Gylfi minntur á leik West Ham og Tottenham í febrúar þegar okkar maður kom af bekknum og breytti gangi leiksins. Spurs vann 3-2 sigur en eftir leikinn virtist Villas-Boas gefa öllum leikmönnum Spurs faðmlag úti á vellinum, nema Gylfa. „Hann hefur verið eitthvað hræddur við mig. Ég byrjaði á bekknum í þessum leik," sagði Gylfi kíminn. Reikna má með því að Gylfi verði í byrjunarliði Spurs þegar liðið sækir Swansea heim í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Gylfi sló einmitt í gegn með Swansea seinni hluta síðustu leiktíðar og var kjörinn besti leikmaður marsmánaðar. Hægt er að hlusta á viðtalið við landsliðshetjuna í spilaranum hér fyrir ofan.Íþróttadeild Vísis er komin á Fésbókina. Smellið hér til þess að slást í hópinn og fá nýjustu tíðindi úr heimi íþróttanna.
Enski boltinn HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Sigurbjörn í sérflokki og tveir þjálfarar toppa formann KSÍ á tekjulistanum Sport Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Íslenski boltinn Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Fótbolti „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Alfreð hrósað fyrir metkaup á einum heitasta leikmanni norsku deildarinnar Fótbolti Sjáðu samskipti dómarans í úrslitaleik HM: Bað Messi um að róa Paredes niður Fótbolti Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Íslenski boltinn Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Enski boltinn Fleiri fréttir Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sjá meira