Erlent

Barnsmóðir manns sem fyrirfór sér í beinni höfðar mál

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Romero, augnabliki áður en hann hleypti af.
Romero, augnabliki áður en hann hleypti af. mynd/skjáskot
Barnsmóðir manns sem fyrirfór sér í beinni útsendingu á Fox News hefur höfðað mál á hendur sjónvarpsstöðinni. Segir hún útsendinguna hafa valdið sér og börnum sínum þremur miklu tilfinningalegu uppnámi.

JoDon Romero hafði verið á flótta undan lögreglu í Arizona í um klukkustund þann 28. september í fyrra, þegar hann dró upp skammbyssu og skaut sig í höfuðið. Hinn 33 ára gamli Romero lést samstundis.

Þyrla á vegum Fox News hafði fylgst með eltingarleiknum og sjónvarpað honum í beinni útsendingu, en ekki náðist að klippa á útsendinguna þegar Romero hleypti af.

Börn Romeros horfðu á myndskeiðið á Youtube eftir að hafa heyrt af því frá skólafélögum sínum. Þau vissu ekki að um föður sinn væri að ræða fyrr en þau sáu það sjálf.

Hafa þau glímt við áfallastreituröskun í kjölfarið og að sögn BBC hafa elstu börnin, sem eru á unglingsaldri, verið frá skóla síðan þau sáu myndbandið.

Barnsmóðirin fer fram á skaðabætur en upphæð þeirra er ekki tilgreind.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×