Upprisa Ramsey Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. nóvember 2013 09:00 Ramsey fagnar með Mesut Özil.
Þegar Liverpool mætti með Daniel Sturridge og Luis Suarez á Emirates um síðustu helgi var talað um próf fyrir lærisveina Arsene Wenger. Þegar liðið hélt til Þýskalands og mætti Dortmund töldu margir að þeim rauðu og hvítu yrði kippt niður á jörðina. Í báðum leikjum stóðst Arsenal erfið próf. Í báðum leikjum skoraði Aaron Ramsey. Walesverjinn féll í skugga Mesuts Özil framan af tímabili. Velgengni Arsenal var fyrst og fremst Þjóðverjanum hæfileikaríka og rándýra að þakka. Ellefu mörk í 17 leikjum auk stoðsendinga er hins vegar ansi góð tölfræði. Öllu betri en mörkin ellefu í leikjunum 150 á undan fyrir Arsenal. Svo góð að Ramsey hefur verið valinn besti leikmaður Arsenal þrjá mánuði í röð. Eftir frammistöðuna í fyrstu leikjum nóvember sem getið var að framan eru líkurnar meiri en minni að enn ein viðurkenningin falli honum í skaut. „Fyrir ári var staða hans erfið. Hann var á tíðum hikandi og stundum voru stuðningsmennirnir óþolinmóðir. Hann hefur sýnt mikinn andlegan styrk,“ segir Wenger um breytt ástand miðjumannsins. Sjálfstraust verður seint ofmetið og ekki minnkaði það hjá Ramsey á síðustu leiktíð er Wenger gerði við hann nýjan fimm ára samning. Margir fussuðu og sveiuðu. „Hvernig í ósköpunum fékk Ramsey nýjan fimm ára samning? Ótrúlegt!“ voru viðbrögð sjónvarpsmannsins Piers Morgan á samskiptamiðlinum Twitter. Þótt Morgan láti allt flakka lýsa viðbrögð hans skoðunum fleiri stuðningsmanna félagsins frá Norður-London. Stuðningsmenn voru orðnir langþreyttir á titlaleysi og Wenger, vildu nýja leikmenn en ekki endursemja við lélega leikmenn. Enginn kallar Ramsey lélegan í dag. Walesverjinn, sem gekk í raðir Arsenal frá Cardiff þegar hann var sautján ára, hefur fengið sinn skammt af ógæfu. Mest var hún þegar tvö bein í fæti hans brotnuðu við tæklingu Ryans Shawcross í viðureign Arsenal gegn Stoke. Fram að því hafði hann lofað góðu en meiðslin tóku sinn toll. „Það er eins og við höfum keypt nýjan leikmann,“ segir samherjinn Theo Walcott um hinn nýja Ramsey. „Maður hefur á tilfinningunni að öll skot hans muni hafna í netinu,“ segir Jack Wilshere. Samherjar Ramseys kunna vel að meta framlag hans undanfarna mánuði. Hlaupageta Ramsey hefur aldrei verið leyndarmál en fjarri því að alltaf hafi eitthvað komið út úr öllum hlaupunum. Fimm stiga forysta á toppnum í úrvalsdeildinni og toppsætið í Meistaradeildinni er að miklu leyti Ramsey að þakka. Nýjum Ramsey sem hefur vakið von hjá stuðningsmönnum Arsenal um langþráðan endi á átta ára titlalausu tímabili. Man. Utd vildi fá RamseyMARK Mesut Özil og Ramsey fagna sigurmarki þess síðarnefnda gegn Dortmund í vikunni.Nordicphotos/GettyArsenal fer inn í stórleikinn á Old Trafford á morgun með fimm stiga forskot á toppnum. Liðið hefur ekki haft slíkt forskot síðan í toppsætinu í febrúar 2008. Forskotið á United er átta stig og með sigri Arsenal yrði bilið ellefu stig. Arsenal hefur ekki lagt United að velli síðan á Emirates í maí 2011. Hver skoraði sigurmarkið? Jú, Aaron Ramsey. Arsenal hefur hins vegar ekki unnið á Old Trafford síðan 2006 þegar Emmanuel Adebayor var á skotskónum. Velgengni liðsins á útivelli upp á síðkastið í takt við óstöðugleika Manchester United undir stjórn nýja stjórans, David Moyes, gefur stuðningsmönnum Lundúnaliðsins ástæðu til bjartsýni. Fjórtán sigrar og eitt jafntefli í síðustu fimmtán útileikjum ýtir undir líkurnar á góðum úrslitum fyrir Arsenal. Einn maður er þó líklegri en aðrir til að hafa eitthvað um úrslitin á morgun að segja. Robin van Persie skoraði í báðum leikjum liðanna í fyrra. Í leikjunum tveimur á undan skoraði hann líka, þá klæddur búningi Arsenal. Ramsey þurfti einmitt á sínum tíma að velja á milli félaganna sem börðust um hylli kappans sem þá var sautján ára. Eftir samtöl við Sir Alex Ferguson og Wenger hélt hann á vit ævintýranna í Lundúnum. Því bölvuðu stuðningsmenn Arsenal í fyrra en fagna nú.
Enski boltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira