Sögulegt samkomulag Indverja og Kínverja Þorgils Jónsson skrifar 23. október 2013 10:47 Forsætisráðherrar Kína og Indlands handsöluðu samkomulag um umdeilt landamærasvæði í vestanverðum Himalajafjöllum. Mynd/AP
Kína og Indland skrifuðu í morgun undir samkomulag um landamæravarnir, sem þykir gefa von um að í nú sjái fyrir endann á deilur milli asísku risanna um landamærasvæði í vestanverðum Himalajafjöllum. Li Keqiang, forsætisráðherra Kína, og Manmohann Singh, kollegi hans frá Indlandi, handsöluðu samkomulagið að loknum fundi í Beijing í dag þar sem viðskipti milli ríkjanna komu einnig til tals, en Indland hefur bæði haft augastað á kínverskum markaði fyrir útflutningsvörur, sem og á fjárfestingum frá Kína. Deilur hafa staðið milli landanna í hálfa öld þar sem Kína telur sig eiga um 90.000 ferkílómmetra landsvæði sem er innan landamæra Indlands, en á móti telja Indverjar sig eiga 38.000 ferkílómetra svæði innan landamæra Kína. Löndin háðu meðal annars snarpt en blóðugt stríð um svæðið árið 1962, og síðan hafa fjölmargar tilraunir til sátta reynst árangurslausar. Í brýnu sló fyrr á þessu ári þegar Indland sakaði Kína um að hafa sent hersveitir inn fyrir landamæri sín. Kína hafnaði þessum ásökunum algjörlega. Til að koma í veg fyrir að slíkar uppákomur endurtaki sig hafa ríkin ákveðið að efla samskipti sín á milli og funda með reglulegu millibili auk þess sem þeir leggja í sameiginlegt átak gegn smyglstarfsemi. Þá muni hersveitir landanna forðast að ögra hinum aðilanum og ekki veita hvort öðrum eftirför á umdeildum svæðum.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fleiri fréttir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Sjá meira