Redknapp: Odemwingie of heiðarlegur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. febrúar 2013 14:45 Nordic Photos / Getty Images
Peter Odemwingie, leikmaður West Brom, var mikið í fréttunum á lokadegi félagaskiptagluggans um mánaðamótin. Harry Redknapp, stjóri QPR, hefur komið honum til varnar. Odemwingie vildi ólmur komast í burtu frá West Brom en forráðamenn liðsins voru tregir til að selja hann. Hann taldi þó að eitthvað væri að gerast í sínum málum þegar að QPR kom til sögunnar og hélt hann til Lundúna til að gangast undir læknisskoðun. Hins vegar náðu félögin tvö ekki saman og þegar Odemwingie kom á Loftus Road var honum ekki hleypt inn og átti hann engra annarra kosta völ en að snúa aftur til West Bromwich. Steve Clarke, stjóri West Brom, var gáttaður á öllu saman og sagði hegðun Odemwingie brjálæðsilega. „Ótal leikmenn hafa gert margfalt verri hluti en Peter Odemwingie," skrifaði Redknapp í vikulegum dálki sínu í The Sun. „Skítkastið sem hann hefur fengið síðustu dagana er því ótrúlegt." „Ég vona svo sannarlega að þeir sem eru að atast í honum núna gefi honum tækifæri því hans einu mistök voru að vera of heiðarlegur." „West Brom gaf okkur upphæð og strákurinn, sem og umboðsmaður hans, hélt að þetta væri allt klappað og klárt. Það var því ekki óviðeigandi að koma til Lundúna." „Hann vildi bara vera viss um að kaupin gætu gengið í gegn áður en lokað yrði á félagaskipti. Þetta hefði verið mun verra hefðu félögin samþykkt kaupin en hann fallið á tíma."
Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Fleiri fréttir Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Sjá meira