Virtu öryggistilmæli að vettugi 25. apríl 2013 15:00 Hrun Þúsundir manna þustu á vettvang þar sem átta hæða hús hrundi. Hátt í hundrað manns höfðu verið úrskurðaðir látnir í gær en sú tala gæti hafa hækkað. frÉTTABLAÐIÐ/ap
Eigendur verksmiðjuhúsnæðis í nágrenni Dhaka í Bangladess sem hrundi í gær eru grunaðir um að hafa virt tilmæli yfirvalda að vettugi þegar þeir sendu hundruð manna þar til vinnu í gær. Um hundrað manns voru taldir af í gær og mörg hundruð voru sár eftir að húsið hrundi. Talið var að um tvö þúsund manns hafi verið þar inni þegar ósköpin dundu yfir. Í húsinu voru fjórar verksmiðjur sem framleiddu fatnað, meðal annars fyrir keðjurnar Benetton og Children‘s Place. Eftirlitsstofnanir höfðu lokað húsinu vegna þess að stórar sprungur höfðu myndast í veggjum þess, en yfirmenn í verksmiðjunum sendu fólkið engu að síður til vinnu og fullyrtu að engin hætta væri á ferðum. Innanríkisráðherra Bangladess lofaði því, í samtali við fjölmiðla á vettvangi, að sökudólgunum yrði refsað. Atburðir sem þessir eru nokkuð algengir í Bangladess, þar sem mörg hús eru byggð í trássi við byggingarreglugerðir og öryggisstaðla. Aðstæður í fataverksmiðum landsins komust í hámæli fyrir um fimm mánuðum þegar 112 manns létust í eldsvoða í verksmiðju í borginni Tazreen. - þj
Mest lesið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Skotmennirnir feðgar Erlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Innlent Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Sjá meira