Forseti Bólivíu í loftið aftur Guðsteinn Bjarnason skrifar 3. júlí 2013 09:14 Evo Morales á flugvellinum í Vínarborg ásamt Heinz Fischer, forseta Austurríkis, sem kom að heilsa upp á hann. Mynd/AP
Evo Morales, forseti Bólivíu, sat fastur á flugvellinum í Vínarborg klukkustundum saman meðan leitað var í flugvél hans. Grunur virtist hafa vaknað um að uppljóstrarinn Edward Snowden væri í felum um borð. Hann fékk að halda áfram för sinni eftir að landamæraeftirlitið í Austurríki hafði leitað af sér allan grun. Atvik þetta hefur vakið hörð viðbrögð í Bólivíu og fleiri ríkjum Suður-Ameríku. Stjórnvöld í Austurríki segja þó ekkert hæft í því. Allt aðrar ástæður liggi til þess að vélin var kyrrsett á flugvellinum. Vélinni þurfti að millilenda í Austurríki, að sögn embættismanna í Bólivíu vegna þess að flugyfirvöld í Frakklandi, Portúgal, Spáni og á Ítalíu neituðu að leyfa henni að fljúga um lofthelgi sína. Yfirvöld í Austurríki hafa staðfest að Snowden hafi ekki verið um borð. Hann situr, eftir því sem best er vitað, enn fastur á flugvellinum í Moskvu. „Við vitum ekki hver bjó til þessa lygi,” sagði David Choquehenca, utanríkisráðherra Bólivíu, um þann orðróm að Snowden væri um borð í vélinni. „Við við viljum koma á framfæri við alþjóðasamfélagið fordæmingu okkar á þessu ranglæti gagnvart flugvél Evo Morales forseta.”
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Fleiri fréttir Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Sjá meira