Flugvél bólivíska forsetans snúið af leið vegna Snowdens Jakob Bjarnar skrifar 3. júlí 2013 08:06 David Choquehuacna utanríkisráðherra var ekki skemmt þegar hann greindi frá atvikinu.
Flugvél bólivíska forsetans, Evo Morales, var snúið af leið sinni og henni lent í Austurríki í gær. Var þetta vegna gruns bandarísku leyniþjónustunnar þess efnis að uppljóstrarinn Edward Snowden væri um borð, að sögn bólivíska utanríkisráðherrans. Opinberir aðililar, bæði í Bólivíu sem og í Austurríki segja að Snowden hafi ekki verið um borð í flugvélinni. Að sögn meinuðu bæði frönsk og portúgölsk yfirvöld þessu flugi milli Moskvu og Bólivíu að fara um lofthelgi sína. Snowden er sagður sækja um pólitískt hæli í Bólivíu auk 20 annarra landa, til að forðast framsal til Bandaríkjanna þar sem hann getur búist við þungum dómi vegna ásakana um landráð. Bólivíumenn eru ævareiðir vegna atviksins. Bólivíski utanríkisráðherrann, David Choquehuacna, sagði frétta- og blaðamönnum í gær að þetta væri helber lygi, hann viti ekki hver plantaði henni og vildi greina alþjóðasamfélaginu frá þessu atviki sem hann telur reginhneyksli. Bólivíumenn eru ekki einir um að telja þetta hneyksli og "diplómatískt" stórslys. Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, sem verið hefur Snowden innan handar, vandar þeim sem bera ábyrgð á þessu ekki kveðjurnar: "Sögulegur aumingjaskapur og fullkomið virðingarleysi við erlendan þjoðarleiðtoga. Hversu lágt eru ríki tilbúin til að leggjast?" spyr Kristinn í nótt á Facebook-síðu sinni en hann er staddur í New York. Ýmsir, sem tjáð hafa sig um málið á netinu í morgun, tala um að ríki Vestur-Evrópu leggist lágt við að þjóna lund og ofríki Bandaríkjamanna. Meðal þeirra er Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, sem hefur fylgst með málinu. Hann skrifar: "Evrópuríkin eru stimpluð til langframa sem varðhundar bófaflokkanna, er stjórna Bandaríkjunum. Verst er þó útkoma Frakklands, sem stundum þykist rífa kjaft, þegar það er óhætt, en hagar sér eins og kjölturakki, þegar í harðbakkann slær. Í morgun var áfram allt fast, því Spánn neitaði enn að virða alþjóðlegar reglur um diplómatíu."
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fleiri fréttir Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Sjá meira