Enski boltinn

Liverpool slátraði Tottenham í Lundúnum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Liverpool lyfti sér upp í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með því að rúlla yfir Tottenham 5-0 á útivelli. Gylfi Sigurðsson sat allan tímann á bekknum hjá Tottenham.

Liverpool mætti mjög ákveðið til leiks og var sóknarleikur liðsins hraður og mjög góður. Luis Suarez skoraði á 18. mínútu, 16. mark hans í deildinni sem er marki meira en allt lið Tottenham hefur skorað.

Jordan Henderson bætti öðru marki við eftir þunga sókn á 40. mínútu þegar hann fylgdi á eftir skoti Suarez og staðan í hálfleik 2-0.

Ef staðan væri ekki nógu slæm þá var Paulinho rekinn af leikvelli fyrir að brjóta á Suarez á 63. mínútu.

Yfirburðir Liverpool voru miklir í leiknum og ekki minnkuðu þeir við að vera manni fleiri. Jon Flanagan skoraði þriðja markið með frábæru skoti í slána og inn eftir sendingu Suarez á 75. mínútu og sex mínútum fyrir leikslok skoraði Suarez 17. mark sitt á leiktíðinni.

Leikmenn Liverpool voru ekki hættir og enn kom Suarez að markinu. Í þetta skiptið sendi hann boltann inn fyrir flata vörn Tottenham þar sem Raheem Sterling slapp inn fyrir og sendi boltann af öryggi í netið.

Með sigrinum lyfti Liverpool sér upp í annað sæti deildarinnar en Tottenham er með sex stigum minna í 7. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×