Liverpool slátraði Tottenham í Lundúnum Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 15. desember 2013 00:01 Nordic Photos / Getty Images
Liverpool lyfti sér upp í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með því að rúlla yfir Tottenham 5-0 á útivelli. Gylfi Sigurðsson sat allan tímann á bekknum hjá Tottenham. Liverpool mætti mjög ákveðið til leiks og var sóknarleikur liðsins hraður og mjög góður. Luis Suarez skoraði á 18. mínútu, 16. mark hans í deildinni sem er marki meira en allt lið Tottenham hefur skorað. Jordan Henderson bætti öðru marki við eftir þunga sókn á 40. mínútu þegar hann fylgdi á eftir skoti Suarez og staðan í hálfleik 2-0. Ef staðan væri ekki nógu slæm þá var Paulinho rekinn af leikvelli fyrir að brjóta á Suarez á 63. mínútu. Yfirburðir Liverpool voru miklir í leiknum og ekki minnkuðu þeir við að vera manni fleiri. Jon Flanagan skoraði þriðja markið með frábæru skoti í slána og inn eftir sendingu Suarez á 75. mínútu og sex mínútum fyrir leikslok skoraði Suarez 17. mark sitt á leiktíðinni. Leikmenn Liverpool voru ekki hættir og enn kom Suarez að markinu. Í þetta skiptið sendi hann boltann inn fyrir flata vörn Tottenham þar sem Raheem Sterling slapp inn fyrir og sendi boltann af öryggi í netið. Með sigrinum lyfti Liverpool sér upp í annað sæti deildarinnar en Tottenham er með sex stigum minna í 7. sæti deildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Aldrei spilað þarna en sagði strax já Enski boltinn Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Dagskráin í dag: Messan, meistarar Hauka, píla og NFL-veisla Sport Fleiri fréttir Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Sjá meira