Enski boltinn

Moyes: Þessi leikur snérist ekki um mig

Moyes á hliðarlínunni í kvöld.
Moyes á hliðarlínunni í kvöld.
Kvöldið var einstaklega erfitt fyrir David Moyes, stjóra Everton. Liðið sem hann yfirgaf í sumar, Everton, kom þá á hans nýjan heimavöll og fór burt með sigur.

"Þessi niðurstaða er mikil vonbrigði. Okkur vantaði smá heppni en fengum hana ekki. Everton sýndi aftur á móti hversu gott lið það er," sagði Moyes hundsvekktur.

"Við vörðumst alls ekki nógu vel í markinu þeirra. Við fengum færi rétt eins og Everton. Það er engin tilviljun að Everton er í toppbaráttunni.

"Þessi leikur snérist ekki um mig. Ég var svo lánsamur að fá að stýra Everton og ég er líka mjög lánsamur að fá að stýra Man. Utd. Það þýðir ekki að hugsa um það. Við verðum að rífa okkur upp."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×