Enski boltinn

Hermann vill snúa aftur til Englands | Ekki ráðinn til Portsmouth

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ekkert varð af því að Hermann Hreiðarsson færi í starfsviðtal hjá Portsmouth, hans gamla félagi. Hann hefur þó hug á því að koma sér á kortið í Englandi sem knattspyrnustjóri.

Hermann og David James sendu inn sameiginlega umsókn en þeir störfuðu saman hjá ÍBV í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar. Báðir hættu hjá Eyjamönnum eftir tímabilið.

Fyrr í vikunni greindi staðarblaðið The News frá því að þeir félagar hefðu verið boðið í viðtal en nú hefur Hermann staðfest að ekkert hafi orðið af því. Forráðamenn félagsins hafi ákveðið að leita annað.

„Maður þarf að byrja einhversstaðar og það hefði verið kjörið fyrir okkur að byrja hjá Portsmouth,“ sagði Hermann við The News í dag.

„Ég hefði gjarnan viljað koma aftur til félagsins. Okkur James gekk vel að starfa saman hjá ÍBV og við viljum halda samstarfinu áfram.“

„En þeir vildu vera heiðarlegir og ekki sóa tíma okkar. Þess vegna hringdu þeir í mig. Ég skil það vel en kannski kem ég aftur til Portsmouth í framtíðinni.“

Eins og íslenskir fjölmiðlar hafa fjallað um hefur Hermann unnið að því að reisa hótel hér á landi ásamt föður sínum. En hann vill gjarnan starfa áfram í knattspyrnunni.

„Ég elskaði að starfa sem þjálfari og mér finnst ég hafa heilmikið fram að færa. Ég vil bara komast aftur til Englands eins fljótt og kostur er. Ég var þar í fimmtán og hálft ár og þangað vil ég snúa aftur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×