Hermann vill snúa aftur til Englands | Ekki ráðinn til Portsmouth Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. desember 2013 11:39
Ekkert varð af því að Hermann Hreiðarsson færi í starfsviðtal hjá Portsmouth, hans gamla félagi. Hann hefur þó hug á því að koma sér á kortið í Englandi sem knattspyrnustjóri. Hermann og David James sendu inn sameiginlega umsókn en þeir störfuðu saman hjá ÍBV í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar. Báðir hættu hjá Eyjamönnum eftir tímabilið. Fyrr í vikunni greindi staðarblaðið The News frá því að þeir félagar hefðu verið boðið í viðtal en nú hefur Hermann staðfest að ekkert hafi orðið af því. Forráðamenn félagsins hafi ákveðið að leita annað. „Maður þarf að byrja einhversstaðar og það hefði verið kjörið fyrir okkur að byrja hjá Portsmouth,“ sagði Hermann við The News í dag. „Ég hefði gjarnan viljað koma aftur til félagsins. Okkur James gekk vel að starfa saman hjá ÍBV og við viljum halda samstarfinu áfram.“ „En þeir vildu vera heiðarlegir og ekki sóa tíma okkar. Þess vegna hringdu þeir í mig. Ég skil það vel en kannski kem ég aftur til Portsmouth í framtíðinni.“ Eins og íslenskir fjölmiðlar hafa fjallað um hefur Hermann unnið að því að reisa hótel hér á landi ásamt föður sínum. En hann vill gjarnan starfa áfram í knattspyrnunni. „Ég elskaði að starfa sem þjálfari og mér finnst ég hafa heilmikið fram að færa. Ég vil bara komast aftur til Englands eins fljótt og kostur er. Ég var þar í fimmtán og hálft ár og þangað vil ég snúa aftur.“
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Liverpool - Wolves | Jota heiðraður á Anfield Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Arsenal - Brighton | Halda Skytturnar toppsætinu? Enski boltinn Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir Liverpool - Wolves | Jota heiðraður á Anfield Arsenal - Brighton | Halda Skytturnar toppsætinu? Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Sjá meira