Enski boltinn

Pat Rice berst við krabbamein

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pat Rice og Arsene Wenger.
Pat Rice og Arsene Wenger. Mynd/NordicPhotos/Getty
Pat Rice, fyrrum leikmaður Arsenal og seinna aðstoðarmaður Arsene Wenger, hefur verið lagður inn á sjúkrahús en hann berst nú við krabbamein.

Pat Rice er 64 ára gamall Norður-Íri en hann hætti sem aðstoðarmaður Arene Wenger árið 2012 eftir að hafa verið hægri hönd franska knattspyrnustjórans frá 1996.

Rice á að baki 44 ára starf fyrir Arsenal sem leikmaður eða þjálfari en hann spilaði á sínum tíma 528 leiki fyrir félagið. Hann er einn dáðasti Arsenal-maðurinn í sögunni og goðsögn hjá Lundúnafélaginu.

Rice varð tvöfaldur meistari með Arsenal 1971 og varð fyrirliði liðsins þegar bikarinn vannst 1979. Hann varð ráðinn unglingaþjálfari árið 1984 og gegndi ýmsum öðrum þjálfarastörfum hjá Arsenal áður Arsene Wenger gerði hann að aðstoðarknattspyrnustjóra tólf árum seinna.

Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×