Enski boltinn

Hart verður áfram á bekknum

Hart er út í kuldanum.
Hart er út í kuldanum.
Joe Hart, markvörður Man. City, hefur ekki leikið vel í vetur og af þeim sökum verður hann áfram á bekknum hjá Man. City í Meistaradeildinni í vikunni.

Manuel Pellegrini, stjóri Man. City, hefur staðfest að Hart muni verða áfram á bekknum hjá City er liðið spilar gegn CSKA Moskva.

Hart var hent á bekkinn um síðustu helgi eftir skelfileg mistök gegn Chelsea sem kostuðu City leikinn.

Rúmeninn Costel Pantilimon stóð á milli stanganna er City slátraði Norwich, 7-0. Reyndi lítið á hann en líklega verður aðeins meira að gera gegn rússneska liðinu.

"Ég veit ekki hvenær Joe kemur aftur inn í liðið. Það er mikilvægt fyrir hann að fá smá hvíld núna. Hann hefur spilað alla leiki liðsins í tvö og hálft ár," sagði Pellegrini.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×