Enski boltinn

Þetta er framundan í enska boltanum í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ellefta umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst í dag með sex leikjum og þótt að stórleikurinn sé á morgun (Manchester United-Arsenal) þá er fullt af flottum leikjum á dagskránni í dag.

Chelsea og Liverpool spila bæði á heimavelli þar sem ekkert annað en sigur kemur til greina og Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City geta unnið sinn annan leik í röð þegar þeir heimsækja Aston Villa á Villa Park í Birmingham.

Á sjónvarpsvef Vísis má finna létta upphitun fyrir leiki dagsins og að sjálfsögðu eru sviðsljósið á Chelsea og Liverpool sem áttu bæði möguleika á því að komast á toppinn um síðustu helgi en töpuðu þá sínum leikjum.

Það er hægt að sjá þetta myndband með því að smella hér fyrir ofan en hér fyrir neðan má sjá leiki dagsins og á hvaða sjónvarpsrásum þeir verða sýndir.

Leikir í ensku úrvalsdeildinni 9. nóvember 2013:

Klukkan 15.00

Liverpool - Fulham        Stöð 2 Sport 2

Chelsea - West Bromwich        Stöð 2 Sport 3

Aston Villa - Cardiff        Stöð 2 Sport 4

Crystal Palace - Everton    Stöð 2 Sport 5

Southampton - Hull        Stöð 2 Sport 6

Klukkan 17.30

Norwich - West Ham        Stöð 2 Sport 2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×