Pellegrini vill að blaðamenn spyrji Hart út í sjálfstraustið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. október 2013 13:30
Manuel Pellegrini, stjóri Manchester City, neitaði að lýsa yfir stuðningi við markvörðinn Joe Hart eftir 2-1 tapið gegn Chelsea í gær. Skelfileg mistök Hart undir lok leiksins færðu Fernando Torres sigurmarkið á silfurfati. Hart hafa verið mislagðar hendur upp á síðkastið og virðist ekkert lát á. „Ég ætla ekki að deila hugsunum mínum með ykkur,“ sagði Pellegrini sem var einnig hundfúll yfir fagnaðarlátum Jose Mourinho í kjölfar sigurmarksins. Portúgalinn hljóp upp í stúku og fór svo að stjórarnir tókust ekki í hendur í leikslok. „Ég ítreka að ég fer yfir frammistöðu leikmanna minna með leikmönnum mínum. Þið verðið sjálfir að spyrja Hart út í sjálfstraust hans,“ sagði Pellegrini á blaðamannafundi eftir leikinn. Stjórinn frá Chile sagði City hafa tapað þremur leikjum á útivelli óverðskuldað. Ítrekað skoruðu andstæðingarnir mörk eftir klaufaleg mistök sinna manna. Liðið þurfi að skipuleggja sig betur og nýta tímann. Mourinho afsakaði fagnaðarlæti sín og sagðist hafa farið til móts við son sinn. Tilfinningarnar hefðu tekið yfir líkt og þegar hann skemmdi buxurnar í fagnaðarlátum í sigri Real Madrid á City í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð. „Við fengum líka jöfnunarmark á lokamínútunni gegn Bayern München og mér leið eins og einhver hefði rekið hníf í bakið á mér,“ sagði Mourinho um tilfinningar sínar á hliðarlínunni. Mörkin úr leiknum í gær má sjá í spilaranum að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Íslenski boltinn Messi opnar sig um föðurmissinn: „Veit ekki hvernig ég á að halda áfram“ Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Fleiri fréttir Arsenal með þriðja leikinn í röð án sigurs Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Sjá meira