Mark Gylfa dugði ekki til gegn Chelsea 28. september 2013 00:01 Gylfi í baráttu við Ivanovic í dag.
Tottenham komst í dag í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Chelsea. Gylfi Þór Sigurðsson á skotskónum fyrir Spurs en Mata breytti öllu hjá Chelsea. Það var Gylfi Þór sem skoraði fyrsta mark leiksins. Christian Eriksen sendi inn í teiginn á Roberto Soldado sem renndi boltanum á Gylfa sem kom með gott hlaup í teiginn. Gylfi lék á John Terry og kláraði svo færið af harðfylgi með skoti í nærhornið. Smekklegt mark. Tottenham var mun sterkara liðið á meðan Chelsea skapaði sér ekki nokkurn skapaðan hlut. 1-0 í hálfleik. Juan Mata kom af bekknum hjá Chelsea í hálfleik. Loksins, loksins sögðu einhverjir en Mata hefur nánast verið frystur í allan vetur. Mata hleypti miklu lífi í leik Chelsea og hann lagði upp jöfnunarmarkið. Aukaspyrna í teiginn sem Terry skallaði auðveldlega í netið. Chelsea var með tök á leiknum en tíu mínútum fyrir leikslok fækkaði í liði þeirra. Fernando Torres var rekinn af velli með sitt annað gula spjald. Fór þá of harkalega upp í skallaeinvígi við Vertonghen. Gylfi var ekki fjarri því að tryggja Tottenham sigurinn skömmu fyrir leikslok. Átti þá frábært skot sem fór rétt fram hjá markinu. Nær komst Spurs ekki og liðin skiptu því með sér stigunum.Hér má sjá mark Gylfa Þórs í leiknum.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Íslenski boltinn Liverpool og Barcola náð samkomulagi Fótbolti Áhorfendur í áfalli eftir að leikmaður hrundi niður göng Fótbolti Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Fótbolti Ótrúlegt innkast varð að marki Fótbolti KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Íslenski boltinn Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Fótbolti Gefur lítið fyrir orð kollega síns: „Ég skil ekki svona“ Fótbolti Mikil eftirvænting vegna endurkomu Ingebrigtsen Sport Fleiri fréttir Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sjá meira