Enski boltinn

Rosicky verður ekki með Arsenal um helgina vegna meiðsla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tomas Rosicky í leik með Arsenal
Tomas Rosicky í leik með Arsenal mynd / getty images

Tékkinn Tomas Rosicky er að glíma við meiðsli og verður ekki með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni um helgina.



Leikmaðurinn meiddist í landsleik þegar Tékkland tapaði gegn Ítalíu í vikunni og óljóst hversu lengi hann verður frá keppni.



Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, staðfesti þetta á blaðamannafundi í dag.



Arsenal leikur gegn Sunderland en Mesut Özil gæti þá leikið sinn fyrsta leik með félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×