Özil lagði upp í sigri Arsenal Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. september 2013 11:48 Olivier Giroud fagnar marki sínu ásamt Mesut Özil. Nordicphotos/Getty
Arsenal vann 3-1 sigur á Sunderland í 4. umferð ensku úrvalsdeildinni á Leikvangi Ljóssins í Norður-Englandi í dag. Leikurinn var aðeins tíu mínútna gamall þegar tveir örvfættir tóku sig til og bjuggu til mark. Mesut Özil sendi þá fallega sendingu fyrir á Olivier Giroud. Frakkinn þakkaði fyrir sig og kom Arsenal yfir. Arsenal var miklu sterkari aðilinn í leiknum en tókst ekki að bæta við marki í hálfleiknum. Síðari hálfleikurinn var aðeins tveggja mínútna gamall þegar Sunderland fékk nokkuð ódýra vítaspyrnu. Craig Gardner þakkaði fyrir sig og jafnaði metin. Aaron Ramsey tók sig svo til og skoraði tvö mörk fyrir gestina og tryggði liðinu tveggja marka sigur. Minnast verður á glórulausa ákvörðun Martin Atkinson, dómara leiksins, í stöðunni 2-1 fyrir Arsenal. Þá skoraði Sunderland mark sem virtist gott og gilt. Dómari leiksins ákvað hins vegar að flauta í þann mund sem boltinn fór yfir marklínuna og veita Sunderland aukaspyrnu. Eitthvað misfórst Atkinson dómara við beitingu hagnaðarreglunnar og stuðningsmenn Sunderland skiljanlega svekktir. Arsenal hefur níu stig eftir fjóra leiki en Sunderland er á botninum með eitt stig. Paolo di Canio, stjóri Sunderland, var sendur upp í stúku í viðbótartíma vegna mótmæla.
Enski boltinn Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Besta sætið: Vítaspyrnuvæl og stórleikir um helgina Sport Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Körfubolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Körfubolti Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira