Enski boltinn

Moyes: Rooney gæti byrjað gegn Chelsea

Stefán Árni Pálsson skrifar
Wayne Rooney og David Moyes.
Wayne Rooney og David Moyes. Mynd / Getty Images
David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur gefið það í skyn að töluverðar líkur eru á því að Wayne Rooney verði í byrjunarliðinu gegn Chelsea á mánudagskvöl.

Leikmaðurinn hefur verið að glíma við smávægileg meiðsli í sumar en tók þátt í leik Manchester United og Swansea í fyrstu umferð deildarinnar.

Rooney hefur aftur á móti verið orðaður við Chelsea í allt sumar og hefur sjálfur áhuga á því að yfirgefa herbúðir Manchester United.

„Rooney hefur náð sér að fulla og ég tel töluverða möguleika á því að hann byrji gegn Chelsea,“ sagði David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×