Heilaþvegnir stuðningsmenn hjá Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. ágúst 2013 17:15 Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal. Mynd/NordicPhotos/Getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur mátt þola mikla gagnrýni fyrir að styrkja ekki liðið fyrir tímabilið og 1-3 tap á móti Aston Villa var bara olía á þann eld. Hann ræddi þessa gagnrýni á blaðamannfundi í dag. „Þetta voru alltof sterk viðbrögð. Við höfðum bara tapað einum leik frá því í byrjun mars og þess vegna var tapið á móti Villa áfall. Þetta tap var líka áfall af því að þetta var fyrsti leikur tímabilsins en við unnum Meistaradeildarleik á útivelli á móti Bayern og unnum svo 3-0 útisigur á Fenerbahce," sagði Arsene Wenger á blaðamannafundi fyrir seinni leik Arsenal og Fenerbahce í umspili um sæti í Meistaradeildinni. „Þessi óánægja magnaðist upp af því að þið fjölmiðlamenn eru búnir að heilaþvo fólkið á Emirates. Við höfum ekki unnið titil í mörg ár og þess vegna er öll umfjöllun svona neikvæð. Við verðum að komast í gegnum þetta og einbeita okkur að því að spila fótboltaleiki," sagði Wenger. Arsene Wenger talaði líka um það að það þýddi lítið fyrir hann að hlusta á allar þessar gagnrýnisraddir því þær hjálpa honum ekki að taka réttustu ákvörðunina. Wenger hélt einnig áfram að tala um að hann þurfi að styrkja liðið en félagsskiptaglugginn lokar í næstu viku. „Ég hef ekki ákveðinn fjölda af nýjum leikmönnum í huga en við þurfum á liðstyrk að halda. Leikmennirnir sem ég hef í dag deila með mér sýn um hvernig á að spila fótbolta og þeir vilja spila fótbolta eins og ég vil sjá hann spilaðan. Þetta eru sérstakir leikmenn og það er bara pláss í liðinu fyrir leikmenn sem geta lagt eitthvað sérstakt til liðsins," sagði Wenger.
Enski boltinn Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Dagskráin í dag: Spenna í körfunni og fjör í Bestu mörkunum Sport „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Körfubolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Eina þjóðin sem kom ekki á ársþing FIFA en með á HM Fótbolti Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira