Erlent

Forseti Bólivíu í loftið aftur

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Evo Morales á flugvellinum í Vínarborg ásamt Heinz Fischer, forseta Austurríkis, sem kom að heilsa upp á hann.
Evo Morales á flugvellinum í Vínarborg ásamt Heinz Fischer, forseta Austurríkis, sem kom að heilsa upp á hann. Mynd/AP
Evo Morales, forseti Bólivíu, sat fastur á flugvellinum í Vínarborg klukkustundum saman meðan leitað var í flugvél hans. Grunur virtist hafa vaknað um að uppljóstrarinn Edward Snowden væri í felum um borð.

Hann fékk að halda áfram för sinni eftir að landamæraeftirlitið í Austurríki hafði leitað af sér allan grun.

Atvik þetta hefur vakið hörð viðbrögð í Bólivíu og fleiri ríkjum Suður-Ameríku. Stjórnvöld í Austurríki segja þó ekkert hæft í því. Allt aðrar ástæður liggi til þess að vélin var kyrrsett á flugvellinum.

Vélinni þurfti að millilenda í Austurríki, að sögn embættismanna í Bólivíu vegna þess að flugyfirvöld í Frakklandi, Portúgal, Spáni og á Ítalíu neituðu að leyfa henni að fljúga um lofthelgi sína.

Yfirvöld í Austurríki hafa staðfest að Snowden hafi ekki verið um borð. Hann situr, eftir því sem best er vitað, enn fastur á flugvellinum í Moskvu. 

„Við vitum ekki hver bjó til þessa lygi,” sagði David Choquehenca, utanríkisráðherra Bólivíu, um þann orðróm að Snowden væri um borð í vélinni. „Við við viljum koma á framfæri við alþjóðasamfélagið fordæmingu okkar á þessu ranglæti gagnvart flugvél Evo Morales forseta.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×