Erlent

Frakkar vilja frysta fríverslunarsamning við Bandaríkin vegna meintra njósna

Jóhannes Stefánsson skrifar
Köldu lofti andar á milli Bandaríkjanna og ýmissa Evrópuþjóða vegna ásakana um njósnir af hálfu bandaríkjamanna.
Köldu lofti andar á milli Bandaríkjanna og ýmissa Evrópuþjóða vegna ásakana um njósnir af hálfu bandaríkjamanna. AFP
Frönsk yfirvöld vilja gera „tímabundið hlé" á viðræðum Evrópusambandsins við Bandaríkin um fríverslunarsamning vegna ásakana um njósnir af hálfu Bandaríkjamanna.

Þetta kemur fram á Twitter-síðu frönsku fréttastofunnar AFP. Ljóst er að frönsk stjórnvöld líta málið mjög alvarlegum augum, en auk þeirra hafa ýmsir þingmenn Evrópuþingsins gert sömu kröfu. Frakkar eru þó fyrsta ríkið til að fara þess á leit að þetta verði gert. Þá hafa þýskir embættismenn sagt málið eima af „köldu stríði."

Málið er komið á mjög viðkvæmt stig



Fleiri fréttir

Sjá meira


×